
Grænkerið
Grænkerið
Velkomin í Grænkerið, hlaðvarpið sem fjallar um alla króka og kima veganisma og snertir á þeim málefnum sem grænkerar upplifa dags daglega. Talað er á mannamáli út frá raunverulegum aðstæðum og reynt að setja fram lausnir við hversdagslegum vandamálum á jákvæðan hátt.
Eva Kristjánsdóttir stýrir hlaðvarpinu en hún hefur verið vegan í 9 ár. Hún stofnaði Grænkerið með það að markmiði að skapa vettvang sem styður við grænkera á sinni vegan vegferð og minnir þau á að þau séu ekki eina vegan fólkið á landinu.
All episodes
Best episodes
Seasons
Top 10 Grænkerið Episodes
Goodpods has curated a list of the 10 best Grænkerið episodes, ranked by the number of listens and likes each episode have garnered from our listeners. If you are listening to Grænkerið for the first time, there's no better place to start than with one of these standout episodes. If you are a fan of the show, vote for your favorite Grænkerið episode by adding your comments to the episode page.

08/08/23 • 55 min
Í þætti dagsins fær Eva hana Birtu Ísey í heimsókn en Birta situr í stjórn Samtaka grænkera og segir okkur m.a. frá Vegan festivali sem verður haldið 20 ágúst 2023.
Eva byrjar á að segja Birtu frá brúðkaupi sem hún fór í um daginn en þar var ALLT VEGAN!
Hún segir henni einnig frá samræðum sem hún átti við non-vegan kunningja fyrir skömmu. Hann vildi meina að vegan fólk ætti að sjálfsögðu að bjóða upp á kjöt máltíð fyrir þau sem borða kjöt í veislum hjá sér, rétt eins og "allir" taka tillit til vegan fólks.
Við komum meðal annars inná
- Er það sambærilegt fyrir "kjötætur" að bjóða upp á eina vegan máltíð og að biðja vegan manneskju að bjóða upp á máltíð með dýraafurðum í?
- Er tekið svona mikið tillit til vegan fólks?
- Er svona erfitt fyrir fólk að borða eina vegan máltíð?
Ef þú hefur gaman að þættinum hver ég þig til að ýta á follow eða subscribe á þinni hlaðvarpsveitu. Þannig heldur appið utan um gamla og nýja þætti og þú hjálpar í leiðinni hlaðvarpinu að ná til fleira fólks
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.

Afhverju hættir fólk að vera vegan?
Grænkerið
11/14/23 • 60 min
Viðmælandi minn að þessu sinni er Axel Friðriks sem telst nú orðinn reglulegur gestur. Axel er grafískur hönnuður hjá Studio Fin og er ábyrgur fyrir nýja útlitinu á Grænkerinu, sem ég er í skýjunum með.
Í þætti dagsins ræðum við Axel um af hverju fólk hættir að vera vegan..
Hvaða hindrunum mætir vegan fólk og hvernig getum við stutt við þau?
Ef þú fílar þáttinn, skrifaðu endilega review til að hjálpa Grænkerinu að ná til fleirri hlustenda <3
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.

10/03/23 • 101 min
Þessi þáttur er NEGLA þó ég segi sjálf frá.
Rósa Líf Darradóttir, læknir, grænkeri og aktívisti kom til mín í alveg ótrúlega fræðandi viðtal þar sem við ræddum áhrif plöntumiðaðs mataræðis á heilsu okkar.
Hún fór nýlega erlendis á Vegmed, stærstu ráðstefnu plantbased heilbrigðisstarfsfólks í Evrópu. Hún segir okkur frá ráðstefnunni og við förum um víðan völl til að kafa ofan í þetta víðamikla málefni.
Rósa er einstaklega góð í að segja flókna hluti á einföldu mannamáli en við ræddum meðal annars um :
- Tengsl mataræðis við sjúkdóma og þá sérstaklega krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma
- Plöntufæði sem læknisfræðilegt meðferðarúrræði
- Þurfum við að taka mark á næringarráðleggingum um æskilega eða skaðlega næringu?
- Hvað þýðir það að ákveðnar matvörur sé flokkaðar sem skaðlegar eða krabbameinsvaldandi?
Þessi þáttur er í boði Kökulist Bakarí en þar er hægt að fá gómsætar kökur með prentuðum myndum og rooooooooooooosalega góðum mini kleinuhringjum sem þú verður eiginlega að prófa..
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.

Verksmiðjubúskapur á Íslandi
Grænkerið
12/29/22 • 111 min
Þó mörgum finnist erfitt að trúa því er stundaður verksmiðjubúskapur á ýmsum dýrategundum á Íslandi. Dýrunum er haldið í miklum þéttleika og beitt er tilteknum aðferðum til að auka framleiðslu umfram náttúrulega getu umhverfisins. Velferð dýranna er þannig fórnað fyrir hámarks hagnýtingu afurða.
"Það hefur aldrei verið eins samfélagslega viðurkennt að dýr eru skyni gæddar verur, að það eigi að fara vel með þau og að þau njóti ákveðna réttinda innan lagalegs ramma. En á sama tíma höfum við aldrei farið jafn illa með dýr í matvælaiðnaði".
Rósa Líf Darradóttir, læknir og dýravinur er í stjórn Samtaka um dýravelferð. Hún kom í heimsókn og sagði frá herferðinni sem samtökin hrintu af stað undir heitinu "Styður þú verksmiðjubúskap þessi jól?" Þar sem þau vekja athygli á aðstæðum svína í matvælaiðnaði á Íslandi.
Hún útskýrir hvernig flestum svínum á Íslandi er slátrað með grimmilegum hætti í gasklefum og hvetur fólk til að velja með veskinu og styðja ekki við slíka meðferð á dýrum.
Þessi þáttur er í boði Vegan búðarinnar og jömm
Intro: These walls don't lie - Promoe
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.

Hryllingssaga og tilkynning
Grænkerið
10/31/23 • 56 min
Þessi þáttur átti að fjalla um hrekkjavökuna en hringsnérist í höndunum á tveimur með athyglisbrest og fjallaði nú minnst um það málefni. En hvað með það, gjörið svo vel.
Rósa María kíkir í heimsókn eins og svo oft áður og við fórum yfir hvað er á döfinni hjá Grænkerinu.
- Eva segir frá raunverulegri hryllingssögu sem hún lenti í á dögunum,
- Við ætlum að elda með ykkur fyrir jólin!
- Við leitum til hlustenda til að finna nafn á jóla-matreiðslu-gleðina sem er framundan
- World Vegan day er 1. nóvember og við ætlum í vegan pálínuboð
Þáttur dagsins er í boði Hérastubbs bakarís.
Við hvetjum fólk til að gera sér ferð til Grindarvíkur og sjá hvernig alvöru vegan úrval í bakaríi lítur út! Meðal annars er hægt að fá ostaslaufur, snúða, kleinuhringi, kanilkleinur og sérbökuð vínarbrauð.
Ef þú vilt styðja við rekstur hlaðvarpsins getur þú nú gert það í gegnum www.buymeacoffee.com/graenkerid. Þinn stuðningur skiptir máli.
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.

03/05/24 • 56 min
Í þættinum í dag kom Rósa María í heimsókn og við höldum áfram að ræða um málefni sem hafa verið í umræðunni síðustu vikur.
Við ræddum um Kveiks þáttinn um blóðmerahald sem var virkilega vel gerður og fórum einnig yfir Kastljós viðtalið við framkvæmdarstjóra Ísteka.
Rósa er á leiðinni í brettaferð til Ítalíu og ætlar að fara á michelin stjörnu veitingastað Í Milano! Staðurinn býður upp á grænmetis og grænkeramat og er með sérstaka græna michelin stjörnu. Við ræðum um hvernig það er að vera vegan á Ítalíu og hvernig undirbúningurinn er fyrir útlönd.
Nú fara líka að koma páskar og við veltum fyrir okkur hvort við ættum að skella í uppskrift! Hvað viljið þið fá? Eru öll komin með ógeð á Oumph Wellington? Rósa kom með hugmynd að við myndum jafnvel útbúa VEGAN LAMBALÆRI!
Látið okkur endilega vita hverju þið eruð spennt fyrir á hlustendavaktinni og við förum í málið!
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.

Innlit í eldhús
Grænkerið
03/09/21 • 53 min
Hvað er eiginlega aquafaba og liquid smoke? Við förum yfir "Must have" hráefni fyrir vegan eldhússkápa og deilum hvað við eigum alltaf til í okkar eldhúsi.
Intro: These walls don't lie - Promoe
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.

04/13/24 • 51 min
Seint koma sumir en koma þó.
Þáttur vikunnar kemur út aðeins á eftir áætlun vegna mikilla anna.
Þátturinn er persónulegur þar sem við ræðum okkar reynslu og upplifun af því að vera vegan foreldrar, að reyna að kenna börnunum okkar ákveðna lífshætti. Komum inná pælinguna um “ófullkominn veganisma” og hvað það getur reynst erfitt að lifa í þessum ó-vegan heimi.
Þátturinn er í boði Yipin Tofu —> ef þú ert nýgræðingur í tofu bransanum þá er þetta varan fyrir þig. Léttsteikja á pönnu og ekkert annað, algjör leikbreytir í bransanum 🧑🍳
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.

Vegan partý
Grænkerið
10/25/22 • 56 min
Ert þú vegan og ætlar að halda partý?
Ertu að fá vegan manneskju í partý og vilt bjóða upp á vegan veitingar?
WE GOT YOU.
Eva fagnaði þrítugsafmælinu sínu um daginn og deilir hvað hún fer í gegnum þegar plönuð er vegan veisla! Er allt áfengi vegan? Er snakk vegan? Við förum yfir helstu atriðin sem koma að vegan veisluhöldum og reynum að gefa hjálpleg ráð fyrir næsta partý.
Þátturinn er í boði Vegan búðrinnar og Jömm
Intro: Promoe - These walls don’t lie
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.

Vegan 101
Grænkerið
02/25/21 • 39 min
Eva og Rósa fara yfir grunnatriðin í veganisma.
Hver er munurinn á að vera plant based og vegan? Hvaða e-efni þarf að forðast og hvað er þetta næringager sem allir eru að tala um?
Intro
Promoe - These walls don't lie
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.
Show more best episodes

Show more best episodes
FAQ
How many episodes does Grænkerið have?
Grænkerið currently has 63 episodes available.
What topics does Grænkerið cover?
The podcast is about Society & Culture, Vegan, Iceland and Podcasts.
What is the most popular episode on Grænkerið?
The episode title 'Ráðleggingar um grænkerafæði x Óla Kallý frá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu' is the most popular.
What is the average episode length on Grænkerið?
The average episode length on Grænkerið is 68 minutes.
How often are episodes of Grænkerið released?
Episodes of Grænkerið are typically released every 14 days.
When was the first episode of Grænkerið?
The first episode of Grænkerið was released on Feb 21, 2021.
Show more FAQ

Show more FAQ